GK Gluggamót Harðar

Laugardaginn 12. mars verður keppt í fjórgangi og fimmgangi.
Aðeins opinn flokkur verður í greinunum.
Forkeppni verður þannig háttað að einn keppandi verður inn á í einu og keppendur
ráða því sjálfir hvernig prógrammið þeirra er uppbyggt.

Skráning verður þriðjudaginn 8. mars í Harðarbóli og í síma:566-8282
frá kl 19:00-22:00 og er skráningargjald 3.000 kr.
Eftir mótið fá keppendur síðan dómarablöðin með sinni einkunn
ásamt útskýringum frá dómurum varðandi einkunnir.

Með kveðju

Mótanefnd Harðar