Umhverfisdagurinn tókst frábærlega

Umhverfisnefnd og Hesthúseigandafélag vill koma þökkum til allra þeirra sem tóku þátt í Umhverfisdeginum. Það tóku á milli 80 og 100 manns þátt í tiltektinni sem gekk rosalega vel og var safnað mikið af rusli. Síðan var öllum boðið í grill og veitingar.

Vonumst við eftir að það verði eins góð eða betri mæting að ári því margar hendur vinna verkið léttar. Síðan viljum við óska öllum ánægjulegra útreiða í hreinu og fallegu umhverfi.

Umhverfisnefnd og Hesthúseigandafélag