Tiltektardagur Harðar á sumardaginn fyrsta

kafagrasNú fer að koma að því að hinn árlegi TILTEKTARDAGUR líti dagsins ljós. Ætlum við að taka til hendinni SUMARDAGINN FYRSTA 22 apríl sem er fimmtudagur eftir hálfan mánuð.

Hvetjum við alla sem eru með hesta í Herði að koma og hjálpa til við að taka til í kringum okkur og á reiðleiðunum,

því margar hendur vinna hraðar og þá ruslum við þessu af á met tíma eins og í fyrra. Síðan var meiningin að bjóða öllum í léttar veitingar að starfi loknu. Hittumst sumardaginn fyrsta kl 10 í Harðarbóli.

Mætum öll !!!

Umhverfisnefnd Harðar