Líflandsmót

Opna Líflandsmót æskulýðsnefndar Fáks verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal sunnudaginn 19.apríl. Skráning verður í Reiðhöllinni þriðjudaginn 14.apríl milli kl. 18 og 20. Einnig verður tekið við skráningum á sama tíma í síma 567 0100 og 897 4467. Eftir þennan tíma verður ekki tekið við skráningum. Skráningargjaldið er kr. 2.500 á grein og einungis er leyfilegt fyrir hvern knapa að skrá einn hest í hverja grein. Ekkert skráningargjald er fyrir polla.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
 
    * Pollaflokki (1999 og síðar): tölt og tvígangur
    * Barnaflokki: tölt og fjórgangur
    * Unglingaflokki: tölt, fjórgangur og fimmgangur
    * Ungmennaflokki: tölt, fjórgangur og fimmgangur
 

Æskulýðsnefnd Fáks áskilur sér rétt til að fella niður einstaka greinar ef eki næst lágmarksþátttaka.
 
Ekki verður raðað í sæti í pollaflokki en allir pollar fá þátttökupening og verðlaun
 
Bestu kveðjur,
 

Hilda Karen Garðarsdóttir
formaður Æskulýðsnefndar Fáks.