Páska-Ratleikur á hestum

Þar sem vorið nálgast sem og páskarnir, verður haldinn þann 4. apríl nk. kl. 13.00, Páska-Ratleikur á hestum. Þetta er liðakeppni og í hverju liði eru 3 keppendur. Keppnin skiptist í yngri og eldri hópa sem keppa sín á milli og munu ríða mismunandi leiðir.  Í upphafi keppni fá liðin kort sem sýnir hvert þeir eigi að ríða til að leysa fyrstu þraut. Þegar þrautin er leyst þá fær liðið nýtt kort sem sýnir hvert þau ríða næst og svo koll af kolli.   Ekki er keppt í tímatöku í heildarkeppninni en það á að ríða skynsamlega á milli þrauta. Refsistig er gefið ef einn eða fleiri úr hópnum er skilinn eftir. Í öllum þrautum reynir á samvinnu, skipulagningu, prúðleika, hjálpsemi og svo náttúrulega aga, nákvæmni og hraða.

Allirpáskaegg í verðlaun en þeir sem eru efstir fá stærri páskaegg. 

Þá er bara að skrá sig með því að senda tölvupóst til Stínu í æskulýðsnefnd This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi þriðjudaginn 31.mars með upplýsingum um nafn, GSM og netfang. Hægt er að skrá lið saman og/eða einstaklinga sem verða þá raðað í lið.  Ekkert þátttökugjald.

Nú er tíminn fyrir fjölskylduna að njóta tímans saman. Okkur vantar sjálfboðaliða til að þessi leikur fari fram eins vel og kostur er. Eflum liðs- og fjölskylduandann og takið þátt í þessum skemmtilega leik með því að hjálpa okkur. Sendið tölvupóst til Gyðu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.