Halló Halló krakkar - takið 18. okt. frá :-)

Fyrir Harðarkrakka: Jæja þá er komið að því! 18. okt. verður uppskeruhátíðin okkar. Við byrjum kl 18.30. Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur á árinu, knapamerkisviðurkenningar veittar og fl. Við ætlum að hafa góðan kvöldmat (ekki pylsur og hamborgara :-)) með fullt af góðu meðlæti :-) Endilega takið foreldra og systkini með ykkur. Hlökkum til að sjá sem allra allra flesta og hafa það gaman saman, allir Harðarkrakkar velkomnir :-) 
Æskulýðsnefnd Harðar