Leirvogstunga, tillaga að breytingum á deiliskipulagi

Leirvogstunga, tillaga að breytingum á deiliskipulagi

LeirvogstungaMosfellsbær auglýsir hér með samkvæmt 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010     tillögu að breytingum á deiliskipulagi Leirvogstungu sem samþykkt var 28.3.2007 og síðast breytt 2.3.2011. Að hluta til er um að ræða breytingar sem auglýstar voru árið 2009 en hlutu ekki gildi þá.

Helstu breytingar á deiliskipulaginu skv. tillögunni felast í því að reiðleið færist vestur fyrir tengiveg vestan hverfisins (Tunguveg), tengivegurinn færist um allt að 10 m til vesturs á kafla syðst og um 6-12 m til austurs á kafla nyrst, auk ýmissa smærri breytinga á lóðarmörkum, húsgerðum og skilmálum fyrir einstakar lóðir.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 7. maí 2013 til og með 18. júní 2013, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt hér á heimasíðunni:

Tillöguuppdráttur með greinargerð, pdf-skjal, 3,8 MB

Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en 18. júní 2013.

2. maí 2013,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar