Þriðja vetrarmót Harðar

krakki 

Þriðja vetrarmót verður haldið fimmtudaginn 23 apríl. Umhverfisdagur Harðar byrjar kl 10:00 og mótið byrjar ekki fyrr en þið ágætu félagar eru búnir að taka vel til hjá ykkur. Þá meina ég ekki heima hjá ykkur heldur í okkar ágæta hesthúsahverfi. En mótið á að byrja stundvíslega kl 15:00. Skráning verður í Harðarbóli milli 13:00 og 14:00.

 

Dagskráin verður þannig. Pollar, börn, unglingar, ungmenni, konur 2, konur 1, karlar, atvinnumenn og skeið.

Verðlaun verða afhent í Harðarbóli eftir mót því þá verður einnig afhend verðlaun fyrir stigakeppni vetrarins.