Kynbótaferð Harðar 2012

Gleðipinninn Gunni ValsLaugardaginn 25.febrúar ætlum við Harðarfélagar að gera okkur glaðan dag og heimsækja fjögur stórræktunarbú á Suðurlandi.  Farið verður með langferðarbifreið af stærri gerðinni og er mæting við Harðarból kl: 9:00. 

Ferðin kostar 3000 kr. og er innifalið í því sæti í 

langferðarbifreiðinni og nesti svo enginn verði nú svangur á leiðinni Cool

Skráning er hafin og lýkur á miðvikudagskvöldið!  Endilega skráið ykkur sem fyrst…… þú mátt ekki missa af þessari frábæru skemmtun!!!

Skráning hjá Elíasi s: 898-1028, Ingvari s: 821-2801 og Berglindi s: 899-6972