FEGRUNARÁTAK Í HERÐI

Kæru Harðarfélagar.

Nú þegar búið er að sleppa hrossum er um að gera að huga að því að fegra hverfið.  Fljótlega verður farið í það að slétta umhvefis reiðhöllina og búa til bílastæði og stærra kerrustæði.

Einnig verður borið á Harðarból.

Þeir sem hafa geymt hey á rúllustæðinu eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá eftir sig.

Við viljum því hverja ykkur kæru félagar að snyrta umhverfis hesthúsin ykkar, taka upp njóla, mála og fl.

Slippfélagið er með málningu fyrir okkur á góðu verði og þeir vita númerið á grænu málningunni.

TÖKUM NÚ HÖNDUM SAMAN OG FEGRUM HVERFIÐ