Takk fyrir komuna í gær á hugarflugsfund.

Kæru Harðarfélagar.  

Stjórn Harðar langar að þakka þeim félögum sem mættu á hugarflugsfundinn í gærkvöldi fyrir komuna.  Á fundinum var boðið uppá kjötsúpu og síðan skipti fólk sér í hópa og vann að ákveðnu málefni er varðar félagið.  Eftir hópavinnuna flutti hver hópstjóri tillögur hópsins og síðan spunnust líflegar umræður.  Tillögurnar sem fram komu verða birtar á heimasíðunni í næstu viku.

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar.