Keppnisnámskeið fullorðinna

Enn eru nokkur pláss laus á almennt keppnisnámskeið fyrir fullorðna. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að taka þátt í hvers kyns mótum með lokamarkmið á Íþróttamóti Harðar, 13.-15. maí.

Ætlast er til að hestar og knapar kunni skil á grunnæfingum ss. að víkja undan fæti og kunni skil á gangtegundum. Kennt einu sinni í viku á fimmtudögum klukkan 20 og 21. Kennari á námskeiðinu er Oddrún Ýr Sigurðardóttir en hún kennir einnig keppnisnámskeið fyrir konur í vetur. Oddrún hefur sinnt kennslu bæði hér og erlendis í fjölda ára, er með með gæðinga- og íþróttadómararéttindi og landsdómari í hvoru tveggja. Hún hefur dæmt á landsmótum sem og fjölda annarra móta hérlendis og erlendis. Oddrún situr í fræðslunefnd og stjórn gæðingadómarafélags LH.

Verð 13.500 - 9 skipti.

Skráning með nafni, kennitölu og símanúmeri hjá Hönnu, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Námskeiðið hefst 10.mars.